16október
Við erum klárlega ekki nógu duglegar að hittast!!
En ég var að spá hvort að við ættum ekki að hittast fljótlega og skella okkur á kaffihús??
Ég veit að ég er ekki sú duglegasta að ákveða... Íris er klárlega leaderinn í hópnum ;) hehe (þó hún hati það). En hvernig væri að hún myndi negla niður stað og stund og við hinar mætum :):)
Sakna ykkar systur;)
Ágústa
22júlí
Ég veit ekki hvort að einhver ykkar lesi þetta ennþá, en ég læt á reyna.
Hér með ætla ég að panta ykkur þann 11. ágúst 2007 !
Eins og þið vitið allar er ég að fara til Hollands og ætla að halda kveðju-/afmælispartý 11. ágúst. - brottför er sem sagt 13. ágúst.
Ástæðan fyrir því að ég er að panta ykkur svona snemma er að þið eruð alveg ómissandi þangað, svo að ég ætla rétt að vona að þið séuð lausar og sjáið ykkur fært á að mæta ;)
kv. Anna bé 
19júní
Hæ stelpur,
eruði til í að kíkja á kaffihús einhvern tímann núna í vikunni?
Við verðum að hittast : )
Sandra
29maí
Jæja stelpur mínar..... Skólinn er búinn og maður á ekki eftir að hitta ykkur á hverjum degi núna.... Það finnst mér vera mjög sorglegt og ég á eftir að sakna ykkar mjög mikið. Þið verðið samt allar að lofa mér einu: þó að við séum búnar með skólann þá verðum við samt að hittast oft. Þýðir ekki að missa sambönd núna. ok???!
í sumar getum við farið á kaffihús, sund, útileigu, við getum gert margt saman og við tökum líka nokkur góð djömm. Vona að þið hafið áhuga á því!!
Ég elska ykkur allar!! Sandra

23febrúar
Já mar spyr sig... er þessi síða að deyja???? eg vona ekki því þá fer ég að skæla

eftir allar siðurnar sem buið var að prufa og svona þá verð eg brjál

ef að þetta fær ekki að endast eitthvað!!!! og hafið þið það.
Annars var ég að pæla hvort að við GoGo Girls ættum ekki að fara að gera eitthvað af okkur bara við stelpurnar... keilu, bío, kaffihús eða eitthvað...held að fylleri sé ekki á dagskrá sökum þess að Nína er hætt að drekka
Alla vega bara pæling

Íris
29janúar
sælar stelpur...
Þessi síða er nú búin að vera svoldið slöpp undarfarið, sem er ekki alveg nógu gott..
Takk fyrir gærkvöldið, þær sem að mættu ! ;) og ég var að bæta inn myndum frá Afmælinu hans Atla. Þar sem að það tekur endalausan tíma að setja myndir inná Trillurnar þá skellti ég þeim bara hingað inn, svo miklu miklu fljótara. Endilega kíkið á þær, og njótið..

...Svo var ég að prufa að skipta um bakgrunn..ef að þið viljið ekki hafa þetta svona þá komið þið bara ykkar skoðun á framfæri;)
Sjáumst hressar á morgun í skólanum..vívíví..
Kv. Anna Bryndís
16janúar
Jamm það er umræða að gogogirls fái sér búininga en spurningin er hvernig. 3 hugmyndir eru í gangi, svartir með silfur stöfum, svartir með bleikum stöfum og bleikir með svörtum stöfum. Eru einhverjar fleiri hugmyndir kannski??? og hvað viljið þið hafa???
Endilega að láta vita:D
Iris
29desember
Hvað er að gerast stelpur?! Af hverju er enginn að blogga hérna???
Hvað á að gera um áramótin???
//unknown
12desember
Jæja elsku dúllurnar mínar...
núna er bara 1 próf eftir og prófin að verða búin og þá er það spurning, ætlið þið ekki að djamma eitthvað eftir prófin? ég er allavega alveg til;)
við erum nottlega búnar að vera svo duglegar að læra, svo að ég segi að við eigum skilið að djamma rækilega!!
langaði bara að vita hvað þið ætlið að gera?
anna B.
24nóvember
Ég fann 20 " levíur" áðan :(. Stelpur mig langar út aftur!!!!
Sandra :(